15% afsláttur til jóla

Gjafabréf

15% afsláttur af gjafabréfum – spennandi jólagjöf! 🎄🎁

Við erum óendanlega þakklát fyrir frábærar viðtökur við tilboðum okkar í nóvember! Til að gleðja ykkur enn meira bjóðum við 15% afslátt af öllum gjafabréfum til jóla.

Hvort sem þú vilt gefa ævintýri, adrenalínspennu eða einstaka upplifun, þá er gjafabréf frá Zipline Iceland frábær gjöf fyrir þína nánustu.

👉 Smelltu á hnappinn hér að neðan eða veldu „GJÖF“ í valmyndinni hér fyrir ofan til að tryggja þér afsláttinn!

Við hlökkum til að svífa yfir landið með ykkur á nýju ári!

Hlýjar kveðjur,
Zipline Iceland

Hringdu

Sendu okkur línu

Opnunartímar

Páskar til jóla

Kíktu til okkar

Vík í Mýrdal

Ógleymanlegt ævintýri í jólapakkann!

Gjafabréf sem gleðja

Gjafabréfin okkar hafa vakið mikla hrifningu í jólapökkum landsmanna og henta frábærlega fyrir flesta – hvort sem það eru fjölskyldumeðlimir, vinahópurinn, pör eða einstaklingar. Zipline ævintýri í Vík í Mýrdal býður upp á óviðjafnanlega upplifun þar sem íslensk náttúra, menning, útivera, gleði og adrenalín renna saman í ógleymanlega ferð.

Hvað felst í ævintýrinu?
Ferðin, sem tekur um 1,5–2 klst., byrjar á göngu með leiðsögn um einstakt landslag Grafargils.
Á leiðinni svífur þú yfir gilbotninn, fossa og ár á fjórum zipplínum sem bjóða upp á stórkostlegt útsýni og ótrúlega skemmtun.

Praktískar upplýsingar:
Ferðirnar eru í boði daglega frá apríl til október
Hentar öllum ævintýragjörnum fjölskyldumeðlimum eldri en 8 ára.
Þyngdartakmarkanir: 30–120 kg.

Gefðu gjöf sem gleymist aldrei!
Gjafabréf í þetta skemmtilega ævintýri geturðu keypt hér.

Vinsamlegast athugið:
Gjafabréfin eru gild í eitt ár frá útgáfudegi.
Gilda fyrir ferðir bókaðar í Vík og á Akureyri á vefnum www.zipline.is
Gjafabréfin eru ekki endurgreidd

Gerðu jólin að tíma ævintýra og gleði – gefðu gjafabréf frá Zipline Iceland!

Kaupa gjafabréf

Gjafabréfin eru hér 👉 Gjafabréf

Ef þú lendir í vanda sendu okkur þá tölvupóst og við reynum að aðstoða eftir bestu getu.

F.A.Q.

Spurningar og svör

Við fáum oft spurningar varðandi zipplínurnar okkar og oftast er fólk forvitið um hvernig klæðnaður er bestur fyrir ferðina. Best er að vera klæddur eftir veðri og muna að veðurfarið á Íslandi getur breyst á örskotsstundu og verið mismunandi á milli landshluta. Vatnsheldir gönguskór er frábært val eða skór með grófum sóla. Ef þú finnur ekki svar við spurningunum hér, sendu okkur þá endilega tölvupóst og við svörum um hæl.
BARNIÐ MITT ER NÆSTUM 8 ÁRA, MÁ ÞAÐ KOMA MEÐ?
Ef barnið hefur náð þyngdartakmörkunum, 30 kg. þá er það velkomið með í ferð.
ÉG ER MEÐ SLÆM HNÉ, GET ÉG KOMIÐ MEÐ?
Gengið er á mjög ójöfnu landslagi, bæði upp og niður til að komast að zipplínunum. Ef þú treystir þér í þannig labb þá er engin fyrirstaða fyrir þig að taka þátt í ferð.
Þarf ég húfu?
Þú færð hjálm og það er frekar þægilegt að hafa létta húfu eða buff undir honum en alls ekki nausynlegt. Við mælum þó með húfu (með engum dúsk) að vetri til.
Þarf ég hanska?
Þú þarft aldrei að snerta zipplínurnar sjálfar svo hanskar eru ekki nauðsynlegir en á Íslandi er oft kalt í veðri svo oft er gott að hafa vettlinga meðferðis, þó ekki sé nema í vasanum.
Má koma með hund?
Það er því miður ekki hægt að taka hunda með í ferðirnar. Við eigum hvorki öryggisbúnað fyrir hunda né getum haft þá lausa í gilinu þar sem töluvert er af lausagöngu fé þar á beit.
Getið þið útvegað barnapössun?
Því miður nær starfsleyfið okkar ekki yfir barnagæslu og því verðið þið að gæta yngri barna sjálf eða útvega barnapössun sjálf. Þetta á einnig við um gæslu hunda og annarra dýra.

Hafðu samband