Zipplínu ævintýri í Vík
Zipplínu ævintýri í Vík er frábær skemmtun fyrir all þá sem elska smá spennu og vilja örga sér á öruggan hátt. Upplifunin samanstendur af gönguferð í gegnum Grafargil með skemmtilegum sögustoppum og fjórum zipplínum; 120, 240, 30 og 140 metra löngum. Á þeim er svifið yfir stórbrotið landslag gilsins fyrir neðan.
Verð: ISK 11.900kr.
Price börn: ISK 7.900kr.
zipplínu ævintýri
Um þessa upplifun
Framboð
Daglegar brottfarir, á milli páska og jóla.
Lengd
Upplifunin tekur 1,5 – 2 klst. í heild. Heildartíminn er háður stærð hópsins og ásigkomulagi, veður gæti einnig haft áhrif.
Innifalið
Allur öryggisbúnaður, far að byrjun gönguferðar, leiðsögn og allar zipplínur.
Þetta þarftu
Vatnshelda gönguskó með grófum sóla og hlý, vindheld föt. Þumalputtareglan er að klæða sig eftir veðri. Stundum er gott að hafa húfu og vettlinga en oft ekki nauðsynlegt. Sítt hár skal flétta eða setja í lágan snúð.
Hittumst hér
Víkurbraut 5, Vík í Mýrdal, South Iceland (sjá kort). Vinsamlegast mætið 10 – 15 mínútum fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Veður
Stundum er nauðsynlegt að breyta annaðhvort brottfarartíma eða ferðinni sjálfri vegna veðurs. Munið eftir að kanna mögulegar breytingar á tölvupósti áður en þið leggið land undir fót til okkar og skiljið eftir símanúmer svo við náum í ykkur með stuttum fyrirvara.
Í upphafi
Rétt norðan við þorpið Vík í Mýrdal er lítið gil umvafið stórbrotnum fjöllum og jöklum, Grafargil. Í gilinu er merkt gönguleið og á nokkrum stöðum á leiðinni höfum við strengt zipplínur yfir gilið. Við hittumst í Norður-Vík og græjum alla í viðeigandi öryggisbúnað. Þaðan er ca. 5 mín. akstur að upphafsstað göngunnar. Þegar úr bílnum er komið tekur við ganga að fyrstu línunni, Litla Rússa. Þar förum við yfir allar öryggisleiðbeiningar og sýnum ykkur hvernig hægt er að zippa örugglega yfir á þæginlegan hátt, einn yfir í einu. Það næsta sem þú veist er að þú ert á spennuþrunginni fleygiferð hátt yfir gilinu, mundu að halda augunum opnum því útsýnið er stórfenglegt.
MIÐJAN
Önnur línan okkar, Blíði risinn, byrjar nánast þar sem sú fyrsta endar. Þessi lína er lengst, 240 metrar og margir telja hana þá fegurstu. Þegar allir hafa zippað örugglega yfir þessa línu er kominn tími fyrir smá gönguferð, hún er ekki löng, ca. 10 mín. og liggur í gegnum stórbrotið landslags Grafargils að næstu línu.
Þessi lína er lengst, 240 metrar og margir telja hana þá fegurstu. Trúarstökkið er stysta linan okkar og hér förum við yfir gilið á annan hátt en við gerðum áður. Við viljum ekki segja meir af því að þessum hluta viljum við halda leyndum þar til reynir á.
Að lokum
Í lokin zippum við yfir stóra rússa, sem liggur yfir foss að nafni Hundafoss og ef veðrið er gott er öllum velkomið að ganga gamla þjóðveginn aftur heim til Víkur.
ÓSKIR & UNDIRBÚNINGUR
Aldur
Allir verða að vera orðnir 8 ára og forráðamaður þarf að fylgja börnum undir 18 ára aldri.
Þyngd
Þyngdin verður að vera á milli 30 og 120kg. Verið heiðarleg, hér er þyngdin öryggisatriði.
FÆTUR
Best er að vera í vatnsheldum gönguskóm með grófum sóla. Brautin okkar er oft blaut og sleip.
ÚTHALD
Gott er að geta labbað ca. 3 km. á ójöfnu landslagi, upp- og niður í mót á íslenskum móa.
FÆTUR
Best er að vera í vatnsheldum gönguskóm með grófum sóla. Brautin okkar er oft blaut og sleip.
BARNSHAFANDI
Það er ekki óhætt að zippa ef þú ert þunguð
STUNDVÍSI
Mættu til okkar ca. 15 mínútum fyrir áætlaðan brottfarartíma. Sýnum tillitsemi og tefjum ekki fyrir öðrum. Við skreppum út fyrir þægindarammann þinn og skemmtum okkur!
KLÆÐNAÐUR
Klæðumst eftir veðri, hlý, regn- og vindheld föt eru oft góður kostur á Íslandi.
HÁRFLÓKAR
Sítt hár skal flétta eða segja í lágan snúð svo hjálmurinn passi á höfuðið og hárið flækist ekki í búnaðinum.
SKIN OG SKÚRIR
Við zippum í flestum veðrum. Ef við verðum að afbóka ferð vegna veðurs reynum við að færa ferðina ykkar eða endurgreiðum ef það er ekki hægt.
Aðrar upplifanir
Ævintýri í Vík – Zipline & Paragliding
Zipline & Paragliding Vík AdventureOkkar uppáhalds upplifanir í Vík; zipplínur og Svifvængjaflug. Zipplínurnar liggja niðri í gegnum stórkostlega fagurt gil og upplifunin að svífa um á milli skýjahnoðra, hátt yfir svörtum fjörum Mýrdalsins er einstök. Þessi kombó...
Spurningar?
Gönguskór
Viltu vita meira um ferðina okkar? Við getum gefið þér smá innsýn í hana en það verður aldrei hægt að færa þessa upplifun í orð.
Trúarstökkið
Vegna skemmtanagildisins höldum við þessum hluta leyndum, þú kemst að því þegar þú kemur. Vísbending: Indiana Jones – The Last Crusade.
Baldur Blíði
Fyrsta zipplínan okkar er 140 m. og önnur línan er 240 m. löng. Gangurinn að fyrstu tveim línunum er um 5 mín.
Litli Rússi
Síðasta línan okkar er brattari og úr öðruvísi vír en hinar línurnar, Stóri Rússi er 140 metrar og eftir hana er bara að ganga eftir gamla þjóðveginum heim til Víkur eða fá far með bílnum.
Zipplínu ævintýri
Bóka hér
*Börn verða vera í fylgd fullorðinna í ferðinni.
ISK 11.900 kr.
Börn: ISK 7.900 kr.
VILTU EITTHVAÐ SÉRSNIÐIÐ? VIÐ GETUM LÁTIÐ ÞAÐ GERAST!
Starfsmannahópar, skólahópar, stórir hópar, smáir hópar, stórfjölskyldan, einkaferð eða hvernig hópur sem er og hvaða þörf sem er þá getum við mögulega aðstoðað. Sendu okkur endilega línu með ykkar óskum.
Gönguskór
Mundu eftir gönguskónum! Íslenskur jarðvegur er oftast blautur og mjúkur. Við göngum eftir kindastígum í landslaginu og mjóum göngustígum, stundum rennur smá lækur yfir gönguleiðina okkar og eftir rigningar og um vetur er leiðin oft blaut og hál. Gönguskór hjálpa til við að halda fótum þurrum og á stígunum.